|
Tinna, ástfangin af Bjarka, lífinu og öllum andskotanum bara...
|
T i n n a F e r r a r i f a n !!! |
.:[ fimmtudagur, júní 29, 2006 ]:.
ahh netið komið heima gott að geta setið heima og skrifað, skoðað netið og bara gert allt án þess að þurfa að fara á hávaðasamt kaffihús og borga háar fjárhæðir fyrir kaffi og með því sem mig langar kannski ekkert í :) ég er annars bara happý í dag og það er búið að vera æðislegt að geta verið í fríi og verið bara að hafa það gott með bjarka... ég elska hvað við getum eytt öllum deginu saman bara í skemmtilegar umræður og bara einfaldlega skemmt okkur saman :D well ég er hætt í dag, bæ Tinna, happyhappyjoyjoy a RED production by ME!!! at fimmtudagur, júní 29, 2006 0 comments .:[ sunnudagur, júní 25, 2006 ]:. illt illt ILLT!!! mér er illt alls staðar, mér er illt í hálsinum, mér er illt í fótunum, mér er illt í handleggjunum, mér er ill í hausnum og mér er meira að segja ill í PUTTUNUM??? hvers vegna þessi svakalega lemstrun? well pabbi ákvað að bjóða okkur systkinunum og bjarka á bátinn í gær og eins og sannur góður faðir hætti hann ekki fyrr en við vorum öll búin að hendast af blöðrunni með tilheyrandi hringjum í loftinu og splassi... neeeema hvað, ég ákveð auðvitað (eins og mér er líkt) að taka svingið aðeins lengra og hreinlega rústa á mér hálsinum í fyrstu ferð.. þarna ligg ég sumsé í vatninu og þakka gvöðe fyrir það að búningurinn heldur mér á floti því að ég get það andskotakornið ekki! jæja eftir að hafa gefið pabba smá sjokk og samviskubit ;) klifra ég aftur upp í bátinn og fjörið heldur áfram :D bjarki stóð sig eins og hetja og ég var farin að halda að pabba tækist ekkert að henda honum af.. ok ok reyndar um leið og ég sagði við hann "hva er þér ekkert að takast þetta pabbi minn?" þrykkir hann í u-beygju og bjarki flýgur *hehe* þá var hann held ég bara að vera næs við bjarka og ákvað svo að vígja hann almennilega inn í fjölskylduna með því að drekkja honum í hafravatni (einnig með tilheyrandi skoppi og skvampi). eftir þriggja tíma fjör og gaman þurftum við að fara þar sem bjarki þurfti að fara að vinna og ég þurfti að fara að hafa mig fína fyrir útskriftina hennar karenar (TIL HAMINGJU KRÚSAN MÍN!!!) Reyndar verð ég að viðurkenna að eins og mér leið eftir þessa bátsferð gat ég ekki hugsað mér að fara að pússa mig eitthvað upp og gera mig "sæta" - "sæt" var ekki alveg í orðaforðanum mínum þessa stundina .. en mér skilst að mér hafi tekist þetta allt saman nokkuð vel :) ok ok, nóg komið af væli, þessi útskriftarveisla var geðveikt skemmtileg og ég varð yfir mig ástfangin af emblu (hundinum hennar karenar) en svo var kominn tími til að fara að kveðja, enda komnir einir 10-15 mojitos ofan í mann. jah, ekki get ég svo sagt neitt margt um það sem gerðist í bænum því að við tróðum okkur í röðina á óliver (ÉG HATA ÞENNAN HELV STAÐ!!) og lentum hjá hundleiðinlegum þjóðverjum, þurftum að bíða í hálftíma og svo loksins þegar við komumst inn var svo troðið að ekki nokkur maður gat hreift sig þarna.. svoooo að ég yfirgaf svæðið bara. vá hvað ég var samt hamingjusöm með það í morgun þegar ég vaknaði, því ég gæti ekki séð fyrir mér hvernig ég hefði verið ef ég hefði vakað mikið lengur með þetta áfengismagn í mér *hihi* jæja nóg komið í bili, ég þarf að fara að vinna, síðasta daginn í VIKU því að KRAKKARNIR KOMA Á MORGUN!!! jeij!!! bless, Tinna mojito-maker a RED production by ME!!! at sunnudagur, júní 25, 2006 0 comments .:[ föstudagur, júní 16, 2006 ]:. jæja og vá það er heldur betur hamagangur á heimilinu þessa dagana; í gær fengum við okkur nýja kisu, alveg dásamlega krúttlega tveggja mánaða læðu, við komum með hana heim og medium ekki beint ánægð.. allavega, við vorum að knúsa hana og kyssa og þá spyr bjarki mig "hénna þetta er ekki eðlilegt er það?" og heldur utan um skottið á henni.. ég gríp utan um það og já já, er ekki bara risa vinkill alveg við rassinn á henni svo að auðvitað eins og ofverndandi foreldri ríf ég símann og hringi í dagfinn dýralækni og panta tíma strax! við brunum með taxa uppeftir og læknirinn skoðar rófuna ... svei mér þá, þá hefur hún rófubrotnað einhverntíma fyrir tveim vikum eða svo, verið of upptekin af þessu nýja spennandi lífi til að kveinka sér og það hefur gróið í vinkli.. allar taugar heilar og Úlfa okkar verður bara með skakkt skott það sem eftir er :D við förum heim og heimsóknum dynur yfir okkur allan daginn en þegar róast fer kemur medium röltandi eins og tígrisdýr og slagsmálin byrja... úff grey úlfa... en mamma sagði að við ættum að leyfa þeim að slást (eða það er að segja leyfa medium að ráðast á hana) og alls ekki grípa inn í nema hún taki úlfu hálstaki, sem hefur sem betur fer ekki gerst hingað til. ég meina við hverju býst maður, medium hefur verið drottningin alla sína ævi og er ekki á leiðinni að gefa titilinn upp! ohh jæja, þetta tekur einhverja daga sagði mamma svo að við fylgjumst bara með úr fjarlægð og vonum það besta. það er annars mjög gott að við fengum þessa kisu núna því að ég var í fríi í gær og bjarki er í fríi alla helgina svo að við getum fylgst með allavega fyrstu fjóra dagana :) krossleggja fingur! ok ég er farin aftur heim, við bjarki ákváðum að taka vaktir að fara út svo að þær systurnar væru ekki einar heima.. hehe djöfulls paranoija er í manni :) bless, Tinna "overprotectingmom" a RED production by ME!!! at föstudagur, júní 16, 2006 0 comments .:[ þriðjudagur, júní 13, 2006 ]:. weeeee gaman gaman á okkar heimili núna, allt að komast í réttar skorður og farið að verða bara virkilega heimilislegt :D í dag átti ég minn fyrsta frídag í langan tíma og líka eina frídaginn næstu vikurnar... en þrátt fyrir lítinn tíma og svona þá náðum við að redda ýmislegu í sambandi við leigusamninginn og svona, keyptum okkur smá DVD (eddie izzard!!!) wee og framkölluðum myndir sem að eru nú þegar komnar upp á vegg.. það var alveg kominn tími til að endurnýja myndasafnið á veggnum, fann meira að segja myndir sem voru frá '99 í einum rammanum *úff* well, það er annars bara allt æðislegt þessa dagana, fólk er liggur við farið að kvarta yfir of mörgum kossum hjá okkur bjarka (já valur kom að okkur í kringlunni og hélt við værum að stalka hann) svo erum við að fara að fá okkur aðra kisu stelpu, kominn tími til að medium fái annan leikfélga, einhvern sem að er á sama levelli og hún - fjórfætling :) við þurfum reyndar að vinna svo mikið næstu vikuna að það þýðir ekki strax en eflaust gerum við það bara vikuna 25-31 jún... það er að segja þegar systkin bjarka koma til íslands, þá hafa þau allavega eitthvað nýtt og skemmtilegt að sjá ;) vá ég er eiginlega farin að hlakka til að fá þau, þetta verður örugglega geðveikt gaman að geta sýnt þeim stuff og jafnvel farið í skautahöllina (ef hún er opin á sumrin) - ha BJARKI??? well og well, ég er hætt í bili, farin að kyssa kærastann minn meira svo að fólk hafi actually eitthvað til að kvarta yfir ;) bless, Tinna kossaflens! a RED production by ME!!! at þriðjudagur, júní 13, 2006 0 comments .:[ fimmtudagur, júní 08, 2006 ]:. jæja íbúðin öll að smella saman og við eigum bara eftir að hengja upp allar myndir og svona þannig að í dag verður hamrað og bramlað langt fram á kvöld :) íbúðin er yndisleg, björt, góðir gluggar, vel málað (hehe við vorum málandi allan mánudaginn... TAKK MAMMA, PABBI OG TÓMAS!!!) og meira að segja medium er strax farin að fíla sig þvílíkt vel þarna, búin að eigna sér sín horn og stóla bókstaflega Á pleisið :D ég var ekkert smá stressuð að vita hvort að medium myndi fíla sig vel þarna því að í hinni íbúðinni tók það hana alveg mánuð ef ekki meira að vera eins og heima hjá sér... OG það besta við þessa íbúð að þetta er langtímaleiga þannig að allir sem hafa hjálpað mér og bjarka í gegnum tíðina (takk fyrir það bye the way) þið þurfið ekki að hafa áhyggjur að ég böggi ykkur neitt í bráð ;) svona fyrir utan það þá er allt í vinnu og fleiru að ganga bara eins og í sögu, við erum reyndar að drepast úr staffa þörf og erum þess vegna eiginlega alltaf undirmönnuð á vöktum en þá bara vinnur maður hraðar og meira og allt gengur vel :) djí ég er í svo góðu skapi!!! farin að berja í veggi... bless, Tinna "bubbi byggir" a RED production by ME!!! at fimmtudagur, júní 08, 2006 0 comments .:[ mánudagur, júní 05, 2006 ]:. mmm hamingja og gledi!!! vid fundum ibud og erum ad fara ad flytja inn i kvold! thetta er yndisleg tveggja herbergja ibud a bergstadarstraeti a fyrstu haed, vid erum ad fara ad mala a eftir og svo bara flytja inn seinna i kvold, hver er laus ad hjalpa??? a fostudaginn var eg vid thad ad fa hjartaafall vegna yfirvofandi heimilisleysis en akvad samt i veikri von ad kikja a eina ibud sem ad nu thegar voru 30 manns bunir ad saekja um... tveim timum og morgum svitadropum seinna gat eg ekki setid a mer lengur og akvad ad hringja i manninn bara til ad sja til thess ad hann vaeri ekki buinn ad gleyma mer.. hann kom med klassisku setninguna "jah eg akved thetta ekki sjalfur og verd thvi bara ad sja til" sem ad eg sa bara sem "thvi midur auminginn thinn, thu ert ekki nogu kul fyrir mig" svo ad eg thakkadi bara fyrir mig og helt dopur uti sal ad vinna... VITI MENN siminn hringir taepum klukkutima seinna og thad fyrsta sem eg heyri er "heyrdu, vid latum ykkur bara fa ibudina og thid getid flutt inn a manudaginn!" ARGH OG HAMINGJA!!!! svo a medan eg var i simanum ad dila um hitt og thetta hljop eg um allt hereford oskrandi i hljodi og gefandi hverjum sem vildi five og morgum sem eflaust ekki vildu, fadm :) ok ok reyndar neyddumst vid til ad gista hja mommu yfir helgina og i rauninni flytja TVISVAR en hey, who cares :D well, eg er bara hamingjusamari en allt og er farin ad hafa mig til i malningagallann bless, Tinna ibudarleigjandi p.s. bye the way, astaeda thessa heimskulega utlenska bloggs er ad tolvan hennar mommu er ekki i islenskufiling og hatar mig :D a RED production by ME!!! at mánudagur, júní 05, 2006 0 comments |